1. Hugleiðing
Í fyrstu hugleiðingu ætlar Descartes sér að efast, og það um allt sem hann telur sig vita. Grundvöllur skoðanna er kannaður og öllum fyrri skoðunum hafnað;
Fyrir allmörgum árum varð mér ljóst að ég hafði frá ungum aldri talið margar skoðanir réttar, og að hvaðeina, sem ég hafði síðan byggt á þeim, hlaut að vera mjög vafasamt. Því hlyti ég einu sinni á ævinni að kollvarpa öllu, og byrja að nýju frá grunni, ef ég vildi einhvern tíma reisa eitthvað traust og varanlegt í vísindum (bls. 133)
Hér í verkinu varpar hann fram þrenns konar rökum um tilveruna:
1) Skynvillurökin (Illusion argument): Skilningarvitin hafa stundum blekkt mig og þeim er því ekki treystandi, gætu vel verið að blekkja mig enn.
2) Draumrökin (Dream argument): Lífið og tilveran öll gæti verið draumur. Vaka hefur reynst vera draumur, er greinarmunurinn á vöku og draumi óyggjandi? Mig gæti sem best verið að dreyma núna. En líkur á einhverskonar raunverulauka? (Samsettir efnislegir hlutir). Stærðfræðin gæti alveg gilt þó mig sé að dreyma; jafn augljós í draumi og veruleika.
3) Andarökin (Evil spirit argument): Kannski er til máttugur og kænn illur andi sem er að blekkja mig, og því er tilveran ekki raunveruleg. Ef svo er, þá er allt óvisst, jafnt sú þekking sem skilningarvitin láta okkur í té og stærðfræðileg þekking.
Allar efasemdir Descartes í þessari fyrstu hugleiðingu má kalla hinn skipulega efa. Efi hans er skipulegur vegna þess að hann fylgir aðferðinni um skynsemi við efa sinn; hugsar í réttri röð, skiptir vandamálinu upp, og svo framvegis.
2. Hugleiðing
Í annari hugleiðingu reynir Descartes að vinna sig út frá efanum, sem var mikill í lok fyrstu hugleiðingu. Hann fer yfir rökin þrjú úr fyrstu hugkeiðingu; skynvillurökin segja mér að ég hafi engin skilningarvit og engan líkama. En er ég svo bundinn þessum tveimur hugtökum að ég gæti ekki verið til án þeirra? Ég hef sannfært sjálfan mig um að ekkert sé til, en ég sannfærði mig, sem þýðir að ég hlýt að vera til! En hvað ef þetta er allt blekking, hinn illi andi blekkir mig. En ef hann blekkir mig, þá hlýt ég að vera til? Hví blekkja mann sem ekki er til? Hér segir Descartes að öll rökin séu nægilega vegin og metin og að við getum því samviskusamlega fullyrt; ég er, ég er til.
Núna veit ég að ég er til, en hvað er ég þá? Ég er ekki líkaminn, ekki skynjun og ímyndunarafl. Ég er ekki sálin eða þeir eiginleikar sem henni eru tengdir eins og að nærast og hreyfast. Aristótelísk heimspeki segir að ég sé skynsemi gædd skeppna. Ég hef líkama, en hvert er eðli hans? Vél (vélhyggja)[1]. Ég er þá ekki líkaminn og ekki sálin.
Ég er hugsandi vera.
,,Hvað er ég? Hugsandi vera. Hvað er það? Vera sem efast og skilur, játar og neitar, vill og vill ekki, ímyndar sér og skynjar. Þetta er ekki svo lítið ef ég hefði það allt til að bera. En hvernig getur annað verið? Er það ekki ég, sem efast nú um næstum allt..”
(bls. 146)
Núna vitum við bæði 1) að ég er til og 2) hvað ég er. Ég er, ég er til, svo lengi sem ég hugsa.
Vaxmolinn; dæmi Descartes um vaxmolann sýnir okkur að skynjanlegir eiginleikar eru ekki uppspretta þekkingar á eðli hlutarins. Það er að segja, það er ekki ímyndun mín eða skilningarvit sem gefa mér vitneskju um vaxmolann heldur er það hugurinn einn sem gefur mér þessa vitneskju, skilningurinn.
3. Hugleiðing
Í þriðju hugleiðingu hefur Descartes endurreisnarstarf þekkingarinnar, nú byggða á traustum grunni.
- Ég veit það eitt með vissu að ég er hugsandi vera. En þá hlýt ég líka að vita hvernig ég veit það
- Skýr og greinileg skynjun er mælikvarði sannleikans = ,,Sannleiksreglan”
,,Ég veit með vissu að ég er hugsandi vera. Hlýt ég þá ekki að vita líka hvað til þess þarf að ég sé viss um eitthvað? En í þessum frumsannindum um sjálfan mig er ekki annað en skýr og greinileg skynjun þess sem ég held fram. Nú dygði þetta ekki til að veita mér vissu um þessi sannindi ef það gæti nokkru sinni gerzt að það sem ég skynja skýrt og greinilega með þessum hætti reyndist rangt. Svo virðist því sem ég geti sett mér sem algilda reglu að allt það sé satt sem ég skynja mjög skýrt og mjög greinilega.” (bls. 156)
Sannleiksreglan er því þannig:
Skýr og greinileg skynjun.
1. Ég veit með vissu að ég er hugsandi vera.
2. Þessi þekking byggist ekki á neinu öðru en skýrri og greinilegri skynjun þess að þetta er satt.
3. Skýr og greinileg skynjun myndi ekki nægja ef hún væri á einhvern hátt vafasöm.
4. Þess vegna er skýr og greinileg hugsun nægilegur grundvöllur þekkingar, hvaðeina sem ég skynja með þeim hætti er satt.
Hvað er skýrt og greinilegt? Hlutlægt viðfang eða sjálf hin huglæga skynjun?
- Andarök fyrstu hugleiðingar endurskoðuð (spurningar sem eftir standa)
- Er Guð til? Er mögulegt að hann blekki mig?
- Hugmyndin um Guð er ásköpuð (vörumerkisrökin; trademark argument[2])
- Guð blekkir ekki
- Hugmyndir af þrennu tagi: a) áskapaðar (skilningur), b) utanaðkomnar (skilningarvit) og c) uppfundnar (ímyndunarafl)
- Hugmyndin um Guð hefur meiri óeiginlegan veruleika en hugmynd um endanlega verund. Ég get ekki verið orsök þessa óeiginlega veruleika því ég er endanleg verund. Orsök hins óeiginlega veruleika hennar hlýtur þá að vera óendanleg verund.
Strax í þriðju hugleiðingu stöndum við frammi fyrir vandamáli, svonefndum ,,vítahring Descartes” (Cartesian circle):
1. Ég hef skýra og greinilega hugmynd um Guð (sannleiksreglan)
2. Af því sé ég að Guð er til sem fullkomin vera
3. Fullkomin vera blekkir mig ekki
4. Þess vegna get ég reitt mig á skýrar og greinilegar hugmyndir
Er hægt að losna úr þessari hringavitleysu? Það eru til skýr og greinileg sannindi sem hægt er að styðjast við án þess að reiða sig á Guð. Við þurfum hins vegar að einbeita okkur að þeim; þau eru aðeins áreiðanleg á meðan við hugleiðum þau. Tryggir tilvera Guðs samfellu hugsunar okkar frekar en skýrar og greinilegar hugmyndir sem slíkar?
4. Hugleiðing
Í fjórðu hugleiðingu fer Descartes aftur yfir sjálfsmynd sína sem hugsandi vera. Hann fer frá skilningarvitunum að mannshuganum sem hugsandi veru án rúmtaks.
- Hvers vegna geta hugsandi verur haft rangt fyrir sér?
Guð er til og blekkir ekki (niðurstaða þriðju hugleiðingar). Dómgreindin er komin frá Guði og er fullkomin sem slík, þ.e. þegar henni er rétt beitt. Samkvæmt því ætti mér aldrei að skjátlast, en ég er ófullkominn og skeikull. - Hvers vegna skjátlast mér?
Milli veru og neindar; að því leyti sem ég er ófullkominn er mér áfátt. - a) Villa = vöntun, ekki raunveruleiki, dómgreindin er ekki óendanleg
b) Villa = skortur, ekki einföld vöntun, gáfan samt fullkomin; hvers vegna hefur Guð gert mig þannig að mig skortir eitthvað sem mér finnst ég ætti að hafa?
Hér er gerður greinarmunur á að vanta og skorta eitthvað. Að vanta er einhverskonar einfaldari löngun, og því ekki nauðsynleg, en skortur er að skorta eitthvað sem maður ætti að hafa.
- Hvernig getur tilvist algóðs Guðs farið saman við möguleikann á því að hafa rangt fyrir sér?
- Tilgangsorsakir eru ekki tækar. Descartes segir að við getum ekki útskýrt heiminn með tilgangsorsökum[3], af því við vitum ekki af hverju Guð gerði heiminn eins og hann er.
Eðli villu og orsakir
Villur velta á tveimur orsökum; skilningi og vilja. Skilningur er skýr og greinileg skynjun hugmyndanna. Vilji er ótakmarkaður (ekki stigsmunur ólíkt skilningi, minni og ímyndun).
,,Vilji er í því einu fólginn að við getum hvort heldur gert eitthvað ákveðið eða látið það ógert; við getum játað eða neitað, sóst eftir einhverju eða forðast það. Eða öllu heldur í því einu að við finnum að við hneigjumst til þeirra hluta sem skilningurinn leggur fyrir okkur til að játa eða neita, til að sækjast eftir eða forða okkur frá, þannig að við finnum að það er ekkert ytra afl sem ræður afstöðu okkar.” (bls. 185)
Vilji er því a) að játa eða neita (frelsi), og b) ekkert ytra afl ræður afstöðunni, það er, maður er ekki knúinn til neins af neinu ytra afli (innri tilhneiging).
Frelsi og indifferentia
Vandamálið um indefferentia (völ).
- Ástæður eða ekki ástæður til valkosta.
- Samband vilja og þekkingar á valkostum.
- Viljinn jafn frjáls hvort heldur sem er
Orsakir villu
Samband skilnigns og vilja og indifferentia
- Viljinn er víðtækari en skilningurinn; getur náð yfir hluti sem skilningurinn nær ekki yfir.
- Indifferentia útskýrð: dæmi af óvissu óbundin af skilningnum, neytir viljans, ef skilning skortir, eða ef eitthvað er óljóst.
5. Hugleiðing
Í fimmtu hugleiðingu fer Descartes aftur yfir efnislega hluti, án þess þó að vita hvort heimurinn sé til.
- Hvert er eðli efnislegra hluta?
- Tilvera Guðs
- Verufræðirök fyrir eðli Guðs
Hlutverk Guðs í frumspeki Descartes er komið á hreint; tryggir sannleiksgildi skýrra og greinilegra hugmynda (vítahringur Descartes; Cartesian circle).
Eðli efnislegra verunda
- Rúmtakið = samfelld stærð
- Ólíkir hlutiar; hæð, breidd, dýpt, stærð, staða, lögun, hreyfing, tími
Einkunn og hættir
Einkunn: eðliseiginleiki efnisins (rúmtak)
Hættir: eiginleikar sem leiða af eðli efnisins (lögun, stærð, breidd, og svo framvegis)
Hættina skiljum við með tilvísun til einkunnar.
Descartes gerir greinarmun á a) eðliseiginleikum og b) skynrænum eiginleikum. (Pæling: hvort þetta tengist eitthvað tvíhyggjunni varðandi líkamann og sálina.)
Hann gerir greinarmun á eðli (essence) og tilveru (existence).
6. Hugleiðing
Descartes vill í sjöttu hugleiðingu sinni sanna a) tilveru efnislegra hlta og útskýra hinn raunverulega b) greinarmun hugar og líkama.
- Skilningur, ímyndunarafl, skynjun
- Aðgreiningar/deilanleikarök
- Hvert er samspil sálar og líkama?
- Descartes telur sig geta endanlega losnað úr viðjum efans.
Skilningur
- Mögulegir sem viðfangsefni stærðfræðinnar
- Geta verið til sem viðfangsefni hreinnar stærðfræði ,,því að þessu leyti skynja ég þá skýrt og greinilega”
Ímyndunarafl
- Sennilegir því að sérstaka athöfn hugans þarf til ímyndunar
- Fleiri eiginleikar en viðfangsefni stærðfræði
(En þá eru eiginleikarnir margir og ógreinilegir)
Skynjun
- Nauðsynlegir af ýmsum ástæðum: rætt í kjölfarið
Upprifjun
- Rifja upp ,,hvers konar hluti ég taldi sanna áður fyrr” (bls. 204-206) og af hvaða ástæðum
- Rekja ástæðurnar til að draga það í efa (bls. 207)
* Skynvillurök
* Draumrök
* Andarök
- Hvaða skoðun ber að aðhyllast nú (bls. 208)
[1] Descartes aðhylltist þá stefnu að líkaminn virkar eins og vél, sem nefnist vélhyggja. Hann hélt því fram að líkaminn væri samsettur af efni, hefði rúmtak og fylgdi eðlisfræðilegum lögmálum, og að hugurinn (eða sálin) væri algjörlega aðskilin líkamanum og hefur hvorki rúmtak né hreyfingu. Þetta er tvíhyggja (dualism) Descartes. Descartes hélt því einnig fram að aðeins manneskjur væru með sál.
[2] Vörumerkisrökin eða trademark argument gengur út á það að það sé ástæða fyrir öllu sem er til, og ef það er til hugsun um Guð, þá hlýtur að vera ástæða fyrir því. Rökin bera saman hugmyndina um sjálfið við hugmyndina um Guð og enda á því að segja að Guð sé ástæðan fyrir hugmynd mans um Guð. Ef eitthvað er ástæðan fyrir einhverju öðru, þá hlýtur það eitthvað að vera til. Því er Guð til. Margir hafa gagnrýnt þessi rök harðlega, t.d. David Hume sem sagði að Descartes hefði rangt fyrir sér með því að bera saman sjálfið við Guð. Hugmyndin um Guð er ekki áskapaðar, heldur utanaðkomnar. Því hafa ekki allir þessa hugmynd.
[3] Tilgangsorsakir eru ein gerð af fjórum orsökum Aristóteless. Þær voru: tilgangsorsök (final cause), formsorsök (formal cause), efnisorsök (material cause) og áhrifsorsök (efficient cause)
No comments:
Post a Comment